I´m so proud of it I put my name on it!

Anna Hlíf

25.12.2007 19:55:55 / annahlif

GLEÐILEG JÓL

Komiði margblessuð og sæl allir sem skoða þessa síðu.

Ég slysaðist til að kíkja hingað inn núna og sá þá að 123 voru búnir að skoða síðuna mína, þrátt fyrir að ég hafi ekkert bloggað síðan í ágúst... Þannig að mér fannst ég bara verða að koma með nokkrar línur hingað inn svona í þakklætisskyni! ;)

Annars er allt fínt að frétta af okkur. Við héldum okkar fyrstu jól saman á Strandgötunni, ég, Bjarki, Oddrún Eik og svo tengdaforeldrar mínir. Við átum hamborgarahrygg í jólamatinn, með heimalagaðri villisveppasósu a la Bjarki og öllu tilheyrandi meðlæti. Sjúklega gott! Svo vorum við að enda við að úða í okkur hangikjöti á Mýrargötunni, ógisslega gott! :D En maður er auðvitað búinn að éta á sig nokkur göt í hvert skipti sem maður fær sér að éta.

Gærkvöldið (aðfangadagskvöld) fór að mestu leyti í að opna jólagjafir. Ég held svei mér þá að ég hafi aldrei á minni ævi opnað jafn margar jólagjafir. Þessari gjafir innihéldu meðal annars: Ryksugu, örbylgjuofn, þráðlausan heimasíma, hnífaparasett í svona stórri skjalatösku, tvöfalt vöfflujárn, lampa, cd með Dísellu og cd með Eivör, Nirvana MTV tónleikana frægu, bókina Maðurinn, svissneskt gæðasúkkulaði, bók, kökudisk, hnífasett, ritsafnið Landið þitt Ísland og ég veit ekki hvað og hvað. Allt sem ég fékk er ég alveg hæstánægð með! :) Svo opnaði maður auðvitað pakkana til Oddrúnar líka og hún fékk alveg HELLING! Voða voða gaman :)

Svo var litla prinsessan skírð á laugardaginn eins og flestir vita og þar var annað eins pakkaflóð. Allt saman alveg æðislegt sem hún fékk og dagurinn í heild alveg yndislegur. Sú stutta svaf alla skírnina af sér og rumskaði varla þegar hinu heilaga vatni var slett á kollinn á henni! ;)

Það er aldrei að vita nema maður fari að koma með fleiri færslur hingað inn svona við tækifæri. Býst samt ekki við að það verði fyrir áramót næst, þannig að þá óska ég bara öllum gleðilegs og farsæls nýs árs. ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 18:48:47 / annahlif

TÝNDUR SÍMI!!! :/

Já mér tókst að týna símanum mínum. Ekki af því að ég var full og rugluð á djamminu. Ó nei, sjaldan verið stilltari um versló. Ég man samt eftir honum á náttborðinu þegar ég vaknaði í morgun, svo skrapp ég aðeins út. Nokkrum klukkutímum síðar ætlaði ég að kíkja á símann, en þá fann ég hann ekki. Er búin að gera dauðaleit af honum og snúa öllu við en hann finnst ekki!!!

Þannig að ef þið þurfið að ná í mig til að bjóða mér á rúntinn, í heimsókn, í mat eða bara hvert sem þið viljið bjóða mér... Þá hringiði bara í heimasímann á Mýrargötu 5, Neskaupstað! ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 09:51:59 / annahlif

Smá pása

Úff ég er orðin svo löt að blogga. Er að spá í að taka smá pásu hér á þessari síðu, þar sem það er ekki mikið að gerast í augnablikinu. Þegar maður bloggar um "ekki neitt" þá verður það bara gömul og leiðinleg tugga... :) En ég kem aftur við tækifæri.

Ef þið viljið eitthvað fylgjast með mér og viðhengi þá er síðan á barnalandi www.barnaland.is/barn/64003. En ég á eftir að skrifa eitthvað inn þar svona ( ó ) reglulega. Svo er bloggið hans Bjarka líka, en það er nú eitthvað dautt sýnist mér líka!

Allavega bið ég bara að heilsa öllum og hafið það gott. Svo sjáumst við ógeðslega hress um versló fyrir austan! ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 22:30:01 / annahlif

Ónefnd færsla

Hæ allir.

Jæja ég sit hérna fyrir framan imbann og þá kom auglýsing um EYJAR 2007! Þá vaknaði sú spurning hjá mér, hvenær fær maður að vita hvað mun gerast á NEISTAFLUGI 2007? Er alltaf að kíkja á www.neistaflug.is, en þar er ennþá dagskrá Neistaflugs 2006... Frekar lélegt. Allir sem hafa einhverjar upplýsingar um hvað er að gerast um versló, endilega deilið því með mér! :)

Vúhú svo erum við örugglega að fara norður í Skagafjörð um næstu helgi. Hef ekki farið þangað og stoppað af ráði síðan ég veit ekki hvenær. Þá er ég að meina stoppa lengur en til að skjótast á klósettið í Varmahlíð... Skagafjörður er snilld :)

Æji ég hef ekkert meira að segja. Langar bara að benda á www.barnaland.is/barn/64003 - litli bumbuormurinn minn! :)

Take care!


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 14:43:48 / annahlif

Útilega og lopapeysuhátíð

Rólegt í vinnunni í dag, tilvalið að nýta tækifærið og skrifa eitthvað hér.

Síðasta helgi fórum við sem sagt í langþráða útilegu í Húsafell. Keyrðum Borgarfjörðinn og á Hvanneyri. Kíktum á Búvélasafnið þar og var mjög gaman að koma þangað. Við héldum svo áfram og stoppuðum í Reykholti og skoðuðum Snorralaug og svona. Leiðin lá svo áfram í Húsafell og þar var alveg stappað, enda veðrið æðislegt! Við tjölduðum og komum okkur fyrir, grilluðum svo og átum. Eftir mat keyrðum við að Surtshelli og skoðuðum hann og Beinahelli sem er rétt hjá. Virkilega gaman að koma þangað :)

Um kvöldið hittum við svo Jónínu og Gumma smá og röltum saman á brennu og "brekkusöng" sem var bæðevei horror! Þannig að við fórum fljótlega aftur upp á tjaldsvæði og fórum svo bara að sofa. Ef svefn skyldi kalla. Ég svaf hér um bil ekkert um nóttina, um leið ég ég lagðist niður leið mér hreinlega eins og ég væri að kafna. Þannig að um 6 um morgunin fór ég út í smástund. Lagðist svo aftur inn og lá í næstum tvo tíma andvaka í viðbót. Fór þá aftur út og inn í bíl! Ekki gekk nú betur að sofa þar, þannig að um 9 leytið fékk ég nóg, rak Bjarka á fætur (sem var búinn að steinsofa alla nóttina) og brunuðum við beina leið heim. Var komin upp í rúm um 12 leytið á hádegi og svaf til 7 um kvöldið! 8|

Þannig að þetta var kannski ekkert langþráð útilega eftir allt saman... :cry: Er allavega búin að ákveða að fá mér nýtt og stærra tjald næst þegar ég fer í útilegu.

Í gær ætlaði ég og Oddrún litla frænka að fara á Die Hard 4 í bíó í Smáralind. Nema hvað að allir borgarbúar virtust hafa ákveðið að fara í bíó á sama tíma og á sömu mynd. Það var því hér um bil uppselt þegar röðin kom að okkur og við nenntum sko ekki að finna sæti í troðfullum sal!

Jæks, þetta blogg er eintómt tuð... Best að koma með eitthvað jákvætt svona í endinn, það er nefnilega að koma helgi aftur! :) Erum við að spá í fara á Akranes á lopapeysuhátíðina eða Írska daga. Það verður forvitnilegt! :)

Best að hætta í bili! Hafið það gott um helgina :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 23:23:31 / annahlif

Gomma

Sælt veri fólkið.

Þvílík blíða undanfarna daga, minnti mann alveg óþarflega mikið á Austurlandið :) Miðað við sumarið sem var hér í fyrra og sumarið sem var fyrir austan, þá bjóst maður nú ekki við miklu... En góð byrjun engu að síður :) Ekki það að ég sé eitthvað liggjandi í sólbaði... Nenni því nú ekki!

Hvað um það. Við fórum sem sagt í 20 v sónar á mánudaginn, og viti menn gott fólk, nú er ég ein af þeim fáu sem ekki fékk að vita kynið! Þó það hafi heldur betur verið freistandi... En við ákváðum að þrjóskast við. Þannig að það er bara stór spurning hvort verður, því ég hef enga tilfinningu fyrir þessu hehe :)

Um helgina erum við svo að spá í að skreppa í smá útilegu. Hugsa að við förum í Húsafell http://www.husafell.is/forsida/leidarlysing.htm, og aldrei að vita nema maður hitti eitthvað fólk þar, enda vinsæll útilegustaður. Maður kemst í einhvern svona útilegu og náttúrufíling þegar það er svona ágætis veður í kringum mann...

Æji ég veit ekkert hvað ég á að segja meira. Fór jú í bíó um helgina, á tvær myndir. Shrek the third sem var ótrúlega fyndin og skemmtileg, og Oceans thirteen sem var alveg brillant. Ekki skemmdi svo nú fyrir gomman af flottustu leikurunum! (Af hverju gomma? Einhver sem veit?)

 Allavega, held þetta sé ágætt. Hafið það bara gott um helgina! ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 13:27:57 / annahlif

Tuðruspark

Góðan daginn gott fólk.

Ákvað að koma með smá færslu á þessum ágæta degi. Mætti rosa hress í vinnu í morgun, vúhú... :) Fór til næringarráðgjafa á mánudaginn og vonandi bara að hollráðin sem hann gaf mér séu að virka fyrir mig (eða okkur). Borða lítið og oft á dag og vera alltaf með eitthvað nart hjá mér, gulrætur eða poppkex eða eitthvað drasl :)

Nóg um það. Ég og Borghildur brunuðum til Sandgerðis á þriðjudagskveldið og horfðum á okkar menn spila tuðruspark við Reynismenn. Fjarðabyggð kláraði þann leik auðveldlega með 3 mörkum á móti engu! Snilld :) Svo er reyndar annar leikur hjá þeim á morgun, föstudagskvöld. Annars ætlum við Borghildur að fara á kvennalandsleikinn í kvöld, Ísland - Serbía á Laugardalsvellinum. Spurning hvort það sé síðan nóg komið af fótbolta í bili hehe :)

Æji annars hef ég ekkert að segja svo sem... Nema hvað ég hlakka endalaust til að fara austur um versló og fara í þetta litla frí mitt sem ég fæ, svona án þess að fá samviskubit :$ Og jú veiii eitt sem ég hlakka voða mikið til, 20v sónar á mánudaginn! Spurning hvort maður fái að vita kynið... ;)

Hafið það gott ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 20:44:39 / annahlif

Í tilefni dagsins :)

Til hamingju með daginn klakabúar, mikill ánægjudagur þessi 17. júní okkar. Allavega rættist nú vel úr þessum degi hjá mér þar sem hann byrjaði með stefnumóti við klósettskálina eins og svo oft áður. Mikil gleði sem fylgir þessu öllu saman... :^)

En svo fór maður nú að dunda sér við að setja súkkulaðikrem á salthnetukökuna hans Bjarka, en hann á víst afmæli á þessum herrans degi. Gaman að því :) Gaman að segja frá því líka að þegar hann var lítill þá hélt hann að það væru svona voðaleg hátíðarhöld út um allt því allir væru að fagna afmælisdeginum hans... Hehe mjög saklaus lítill sveitaheili þar á ferðinni! :D

Í gær kíktum við Bjarki í útskriftarveislu til Borghildar og Rúnars en þar var nú heldur betur nartað vel í fingra/pinnamatinn sem var á boðstólnum, mmmmm... :) Alltaf gaman að skreppa í veislur.

Það er svo sem ekkert mikið að frétta af okkur, bara þetta sama gamla, þannig að ég held þetta verði ekkert lengra í bili.

Hafið það gott hvar sem þið eruð, hver sem þið eruð og hvað sem þið gerið! ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 00:28:36 / annahlif

Blessuð blíðan

Ójá ég bara varð að blogga í tilefni blíðunnar sem er búin að vera hér í dag. Glampandi sól, yfir 20 stiga hiti og logn. Gerist ekki betra ;)

Ég fór á Reyðarfjörð með krakkaormana hennar systu, en þar var hátíð í tilefni opnunar Alcoa-Fjarðaráls. Tek það fram að ég fór ekki af þeirri ástæðu, heldur einungis til að gera okkur glaðan dag í sólskininu sem einkenndu Austurlandið og skemmtiatriðanna sem voru í boði. Ekki skemmdi að allt var frítt, þar á meðal grillpullur, kökubitar, svalar og eitthvað fleira drasl. Svo átti nú að reyna að klína inn á mann einhverri Alcoa bók en ég þakkaði nú bara pent fyrir og sagðist ekki hafa neinn áhuga múhahaha :haha:

Svo kíktum við Þura yfir á Reyðarfjörð aftur í kvöld á tónleika í Fjarðabyggðarhöllinni með mörgum frægustu söngvurum landins. Svo var mjöööög flott Queen show. Í lok hátíðarinnar var svo listflug og fallhlífastökkvarar. Rosa gaman að sjá það! :)

Hvað um það... Að öðru leyti er ég búin að hafa það skínandi gott hérna í veðurblíðunni og sælunni. Það var pizza a la mamma í kvöld, getið ekki ímyndað ykkur hvað ég var búin að sakna þess :)

Talandi um þessa blíðu, þá er ég búin að ákveða að pakka henni niður í tösku með mér og ræna henni suður! ;) En ég bið að heilsa gott fólk :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 09:35:13 / annahlif

Austur um helgina, vúhú!

Góðan og blessaðan góðir hálsar.

Er mætt alveg úber hress í vinnuna á mánudagsmorgni, og mikið er ég fegin :) Hef mætt dáldið á hádegi síðastliðnar vikur... En það fylgir þessu víst :^) Vona bara að nálastungurnar séu bara farnar að virka fyrir mig. Svo gæti þetta náttúrulega verið sveitaloftið í Aðaldalnum sem hefur þessi góðu áhrif :)

Ég var sumsé fyrir norðan í sveitinni um helgina og það var alveg ægilega gott. Alltaf gott að komast út úr stressinu, geðveikinni og umferðaræsingnum sem einkennir annars þessa ágætu höfuðborg okkar. Get nú ekki sagt að maður hafi verið glaður þegar við lögðum af stað suður aftur, tala nú ekki um þegar maður var kominn í rokið og rigninguna sem er hérna núna. En þetta velur maður sér :|

Annars ætti ég ekkert að vera að væla hehe, er nýkomin að norðan og fer austur um næstu helgi. Á flug á fimmtudagskvöld og ætlar litli bróinn að sækja mig á flugvöllinn á fína Cadillac-num sínum :) Fer svo aftur í bæinn á sunnudagskvöld og svo vinna í allt sumar fram að versló... En þá er tveggja vikna vel þegið sumarfrí. Höfum verið að spá í að keyra kannski vestfirðina í fríinu, okkur langar allavega að skoða landið eitthvað.

En ég held þetta sé bara fínt í bili... Take care ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 18:20:58 / annahlif

Tónleikar og nálastungur

Sælar. Jæja þá er komið að enn einu svona klisjublogginu þar sem maður rembist við að finna upp á einhverju til að skrifa :)

Svona það sem stendur upp úr á undanförnum vikum þarf vart að nefna en ég geri það að sjálfsögðu! :) Uriah Heep og Deep Purple tónleikar. Ohh my... Þetta var DÁSAMLEG upplifun og bara so sorry fólk þið sem voruð ekki þarna! :lol: Holy moly hvað það var geggjað að hlusta á hin ódauðlegu lög þessara tveggja brilliant hljómsveita.

Anyway, um helgina er sjómannadagshelgin og dísöss hvað mig langar mikið austur eins og ég hef kannski nefnt einu sinni eða tvisvar. Held bara hreinlega samt að ég tými ekki að kaupa mér flug fram og til baka fyrir 22.000-25.000 kr. Þvílíkt rán. Annars er ég búin að fá frí í vinnunni á föstudag í næstu viku svona ef mér skyldi detta í hug að fara austur þá helgina svona í sárabætur :) Er að vonast til að komast á vildarpunktum sem ég kem til með að eignast á morgun eða hinn. Langar allavega geggjað austur á næstunni, og ég get sko EKKI beðið þangað til um versló...

Í gær fór ég í nálastungur svona vegna ógleði sem hefur hrjáð mér undanfarna mánuði. Ég er ekki frá því að klígjan hafi eitthvað minnkað en sú sem var að stinga mig sagði að þetta gæti tekið upp í fjóra daga að virka. God hvað ég vona að þetta hverfi bara alveg!

Gott fólk, ég bið bara að heilsa ykkur þangað til næst :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 19:40:47 / annahlif

Hin dæmigerða bloggfærsla

Komiði margblessuð og sæl. Enn ein helgin senn að baki og á morgun hefst enn ein vinnuvikan, og nú með fimm dögum, ef ég er heppin. Vikan þar á eftir verður hins vegar bara fjögurra daga vinnuvika sem er alltaf ægilega ljúft :) En svo eru Deep Purple og Uriah Heep tónleikar á hvítasunnukvöldið eftir viku og frí daginn eftir. Vúhúúú! Get ekki beðið :D

Annars var þessi helgi bara róleg eins og venjulega. Hitti Borghildi á föstudagskvöldið og skelltum við okkur á leik Fjarðabyggðar og Fjölnis þar sem okkar menn unnu 1-0. Tveir leikir búnir og báðir unnir! Snilld :)

Sjómannadagshelgin er svo eftir tvær vikur og maður lifandi hvað mig langar mikið austur í nokkra daga. Ætla að reyna að komast, en það kemur allt í ljós... Veit ekki hvort ég kann við að biðja um frí þegar ég er búin að vera svona frá vinnu :^) En ég fæ nú tveggja vikna sumarfrí strax eftir versló, sem er tilhlökkunarefni :)

Annars hef ég ekkert meira að segja í bili, lítið að frétta akkurat í augnablikinu. Nú ef þið viljið vita eitthvað þá bara endilega hringið ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 19:01:15 / annahlif

Booooo

Komiði margblessuð og sæl. Hef eitthvað svo voða lítið að gera þannig að ég ákvað að reyna að koma með eitthvað bitastætt hér. Nenni nefnilega ekki að elda þar sem matarlystin er eitthvað takmörkuð þessa dagana :S

Annars gerir maður nú lítið annað þessa dagana en að fletta á milli 90 sjónvarpsstöðva sem maður er með núna, liggjandi upp í sófa eins og skata... Þvílíkt ljúft líf, svona ef maður hugsar til þess að allir í kringum mann eru lærandi undir próf eða skrifandi BA/BS-verkefni... En kannski ekki beint til fyrirmyndar hehe :$ En þrátt fyrir allt þetta sjónvarpsgláp, þá er nú margt fróðlegt að sjá og er Animal Planet í algjöru uppáhaldi hjá mér. Fullt af allskonar forvitnilegum dýraþáttum um öll heimsins dýr. Algjör snilld! :)

Jæja gott fólk, annars er nú ekki mikið að frétta. Systkini mín eru að koma í bæinn um helgina... Það verður gaman að hitta þessi yndislegu óféti :)

Jájá flott, ég hef ekkert að segja. Hafið það öll gott ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 19:52:34 / annahlif

Síðastliðinn mánuður

Sælt veri fólkið.

Síðast bloggaði ég 9. mars en síðan þá hefur ýmislegt verið brallað. Þar má nefna Austfirðingadjamm á Players 16. mars, sem var alveg stórfín skemmtun. Helgina eftir varð maður tvítugur í fjórða sinn ;) en í tilefni af því var ég með smá afmæliskaffi sem var voða kósí. Helgina eftir var flúið austur í endalausa leti og þægilegheit. Þar var bara eldað ofan í mann og sett hreint á rúmið fyrir mann... Bara eins og hótel mamma gerist best :)

Annars var flakkað aðeins norður þarna í millitíðinni sem var voða gott líka. Á laugardagskvöldið síðasta kíktum við í Egilsbúð á ball með Outloud. Það var hreint út sagt mjög skemmtilegt. Tónlistin sem þeir eru að taka er alveg ekta balltónlist og auðvelt að skemmta sér mjög vel :)

Svo var það páskadagurinn... Það var nú bara sofið vel út eftir ballið, svo þegar var vaknað var dýrindis steik með alls kyns djúsí meðlæti ;) Eftir matinn lögðum við af stað norður, og svo suður á annan í páskum. Ég verð nú að viðurkenna að maður var ekkert voðalega mikið til í að mæta til vinnu eftir svona ljúft frí, en svona er þetta bara :)

En jæja ég þarf að fara að taka úr fínu fínu þvottavélinni minni.

Hafið það gott, gott fólk :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 17:43:27 / annahlif

Gubbi gubb

Bloggi blogg blogg!

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
Tékk it át!!!
Engillinn minn
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1553 dögum